|
|
08.05.2007 14:35:34 / magguz
»
03.04.2007 14:57:20 / magguz
well well jæja þa erum við loksins byrjuð á að pakka niður ,eg
fór í kassagerðina og keypti heila 25 stóra kassa.og erum við búin
að pakka niður helmingnum ,við þurfum nú að klára þetta fyrir
föstudaginn því han kalli fer norður þa með búslóðina okkar og
kemur væntalega aftur á laugardeginum.ágústa og nói eru ekki komin
með íbúð enn en fá að vera í íbúðinni okkar til 20 apríl og þa
flytjum við loksins loksin hlakka mikið til eins gott að þau verði
búin að finna ser eitthvað því ekki getum við búið öll saman.eg er
komin 36 vikur núna og er bara hætt að vinna hann svenni minn er
orðin vaktstjóri nuna á nings á nú samt eftir að sakna margra
mjög mikið þarna .en svona er þetta bara .eg er búin að vera með
mikla samdráttarverki undarfarið þannig ,svo í næstu viku fer eg í
skoðun og fæ að vita hvort að eg fari í keisara því litli kúturinn
minn er bara sitjandi er nú samt að vona að það þurfi ekki.eg hekk
heima alla síðustu viku með hann brynjar minn því hann náði ser í
einhverja vírusýkingu og steyptist allur í bólum ,en það var nú
bara nice að geta dekrað aðeins við hann aður en sá nýji kemur.jæja
læt heyra í mer fljótlega aftur
kv magga
»
23.03.2007 15:02:37 / magguz
1.niðnafnið mitt
2.aldurinn minn
3. er eg single or taken
4. er eg með tatto eða göt
5. þekkjumst við persónulega
6. hver er tilgangur með lífi mínu
7. myndiru bakka mig upp í slagsmálum
8. get eg þagað yfir leyndarmálum
9. besta minningin um okkur
10. segðu eitthvað skritið um mig
11. myndir þu hugsa ummig ef eg væri veik
12. hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega
13. finst þer eg góð manneskja
14. finst þer eg aðlaðandi
15. ef eg ætti einn dag ólifaðan ,hvað myndum við gera
»
07.03.2007 21:19:50 / magguz
»
27.02.2007 18:37:00 / magguz
hellú jæja þa er enn ein vinnuhelgin búin ,og hún var nú reyndar
bara fín eins og yfirleitt.en já eg á nú ekki mikið svosum eftir í
vinnunni eg ætla að þrauka út mars með hjálp fra svenna og auðvitað
öllum hinum  svo stefni eg á að vera bara hætt um 1 apríl og
njóta þess að vera heima í mánuð þó að maður verði nú á fullu allan
tímann að flytja.eg fór í skoðun í siðustu viku og þa var sagt við
mig að eg væri með aðeins of mikið legvatn ,sennilega væri það útaf
sykrinum þa myndast meira vatn,svo eg fæ að vita á föstudaginn
hvort að eg eigi að fara nota insúlín  vona nú ekki það er svo
stutt eftir hjá mer,svo á mánudaginn fór eg í 3 víddar sónar tók
múttu með þar sem að kalli komst ekki frá vinnu og vá hvað þetta er
gaman við sáum framaní litla prinsinn og svo allt miklu betur svo
fengum við 50 myndir inná disk og líka svona hreyfimyndir en þetta
kostaði nu aðeins 12900 kr  en svosum alveg þess virði.við erum að
spá í að fara eitthvað um helgina hann kalli vill bara fara norður
ef hann fær ráðið en það er víst ekki hægt er ekki viss um að eg
mundi endast svo lengi í bíl  maður er orðin svoddan aumingi hehe.á
laugardaginn síðasta fórum við kalli á brodway með vinnunni hans á
árshátið svaka fínn matur svo sáum við tínu törner dæmið þarna ,það
var mjög gaman og skemmtum við okkur ógeðslega vel þó að við höfum
ekki verið allan tímann .en já svo er bara vinna á morgun og
fimmtudaginn og fara svo í gott helgarfrí .aldrey að vita hvað
maður gerir .jæja læt heyra í mer fljótlega .kv magga
»
15.02.2007 10:20:46 / magguz
jæja þa ,ætli maður reyni ekki að blogga eitthvað her ,það er
samt allt það sama að fretta hja mer vinn bara og sef svo dagana
sem eg er í fríi .eg er að fara í sónar á þriðjudaginn ,ljósmóðir
fanst kúlan hafa stækkað eitthvað óvenjulega mikið frá því síðast
þannig að eg fer í vaxtarsónar sem er reyndar mjög algengt þegar að
maður er með meðgöngusykursýki.eg ætla að vinna út þennan mánuð
mínar vaktir og byrja að minnka við mig í næsta mánuði stefni svo á
að vera hætt 1 apríl svo við getum flutt 20 apríl.það er búið að
finna vaktstjóra sem tekur við af mer hann heitir svenni og er
alveg yndislegur er eg mjög feginn að vita að hann taki við af mer
eg talaði við leigusalann okkur á manudaginn og spurði hann
hvort að við mættum fara úr íbuðinni 1 apríl en nei hann vildi ekki
leyfa okkur það nema hann tæki 150 þusund króna trygginguna okkar
og eg var nú ekki alveg sátt við það .þannig að við borgun siðustu
leiguna okkar í apríl og svo förum við bara úr íbuðinni aðeins fyrr
.er ekki alveg til í að vera flytja 1 mai þar sem að eg á að eiga 4
mai en já það styttist í að við verðum komin í sveitina til
ágústu og nóa .við getum hreinlega ekki beðið ,þetta gerist allt
svo hratt eitthvað.minn yndislega mágur átti afmæli í gær 30 ára
kallinn .til hamingju með það elsku nói minn.svo á laugardaginn
næsta erum við kalli að fara á árshátið á brodway með vinnunni hans
ef maður verður ekki orðin veikur mer finst allir vera veikir .en
já eg skal vera duglegri að blogga fyrir ykkur las nú a einu bloggi
að eg væri löt að blogga hummmmmm segi ekki meir . jæja ætla að
fara taka mig til í vinnuna .heyrumst fljótlega
kv magga
»
07.02.2007 20:20:35 / magguz
hæhæ allir jæja dagurinn byrjaði ekki vel hja mer í dag eg fór með
brynjar í leikskólann
og allt í góðu með það svo þegar að eg er á leiðinni heim fer
bílinn minn ekki í gang semsagt ramagnslaus  þannig að eg labba
heim og átti að fara í mæðraskoðun klukkan 10 en þurfti að sleppa
henni.svo sæki eg brynjar í dag í leikskólan og bílinn minn enn
fyrir utan og eg ákvað að fá mer göngu til hennar múttu og vera þar
þanga til að kalli er búin í vinnunni .svo hringir kalli í mig
klukkan 5 og segir mer að löggan hafi verið að hringja í hann og þa
hefði bílinn okkar runnið niður helvitans efstahjallan og lent á 2
öðrum bílun   svo eg panikaði og við mútta hlupum
uppeftir og þa beið bara löggan eftir mer ,dísus helt
gjörsamlega að þetta mundi koma mer á stað þar sem að hjartað á mer
var á miljón svo sá eg hver átti bílinn þa var þetta stelpa sem var
í hinum bekknum mínum svo kona sem vann í skólanum mínum
 hefði eg getað klikkast þa semsagt rann bílinn úr gír vegna
þunga vildi löggan meina og fór niður brekkuna og á þeirra bíla ja
og handbremsan frosin,sem betur fer meiddist engin .þannig að það
þetta er búið að vera ömurlegur dagur .bílinn okkar skemmdist
ekkert en annar bilinn hinn skemmdist smá en hinn eiginlega ekkert
.er að drepast úr verkjum eftir þennan leiðinlega dag...sorry varð
að pústa aðeins
kv magga
»
05.02.2007 18:32:53 / magguz
hæhæ allir jæja eg er sko búin að hafa það alltof gott siðustu
viku hehe,en á miðvikudagskvöldið komu Ágústa og co ,sjett geggjað
gaman að fá þau ,svo á fimmtudeginum var eg að vinna bara til 3 og
þa kom hún Eyja mín og leysti mig af og fórum við út að borða um
kvöldið Eg ,Ágústa,Björk,Guðrún og Karó á ítalíu ,við sátum
heillengi eftir það og spjölluðum mikið .á föstudeginum var farið í
heimsóknir og smá búðarráp með Gústu og eldað svo góðan mat um
kvöldið og svo horfðum við á video saman og spjölluðum endalaust.á
laugardeginum var vaknað snemma líka og slappað aðeins af og svo
fórum við út í snjóinn og tókum langan rúnt ,svo um kvöldið fór eg
nú bara snemma að sofa því Gústa fór út á djammið .Á sunnudeginum
fórum við í afmæli til Afa hann var 80 ára kallinn og var það
haldið á Hrafnistu og hitti maður alla ættingjana sína þar sem að
maður ser sirka 2 ára fresti en mjög gaman ,svo fórum Ágústa og co
norður og við fórum heim .um kvöldið fór eg með Arndísi í vogana
til hennar Heru og sjá litla kútinn hennar .algjör dúlla maður
varð alveg æstur að sjá svona litinn og sætan kút ,en það styttist
í þetta hjá mer ,eg er komin 28 vikur og gengur bara allt í
sómanum nema eg er ALLTAF þreytt og er byrjuð að fá svolitla verki
í grindina en svona er þetta bara hehe,jæja læt heyra í mer
fljótlega elskurnar .
bæjó kv magga
»
28.01.2007 18:59:25 / magguz
jæja jæja þa er verið að reka á eftir færslu hjá mer,en já það er
mest litið búið að gerast um helgina hja mer nema bara vinna og
vinna   ohh hlakka bara mikið til þegar að eg
get hætt er orðin svolitið lúinn á þessu hehe .en já við kalli
vorum að athuga í dag hvort að við fengjum að fara úr íbuðinn sem
við erum í nuna 1 apríl svo við gætum farið norður þa í okkar íbuð
en hann tók nú ekki vel í það og sagðist bara ætla láta okkur vita
þegar að hann væri búin að akveða það  frekar fúllt þar sem að
við vorum búin að akveða að flytja í sveitina þa og eiga litla
krílið mitt fyrir norðan en það kemur vonandi allt saman í ljós
fljótlega .svo er ágústa og co að koma í bæinn á miðvikudaginn
  eg get gjörsamlega ekki beðið eg hlakka svo til þau verða hjá
okkur fram yfir næstu helgi .ja annars er allt gott að fretta af
okkur her bumbunni líður bara mjög vel og stækkar og stækkar .svo
erum við að spá í að skella okkur annahvort austur til tendó í
febrúar eða bara slappa af í sumarbústað .
»
17.01.2007 12:41:25 / magguz
jæja jæja loksins komin með netið ,var að verða hálf geggjuð á að
hafa ekkert net.
en já eg er semsagt búin að vera núna í fríi mánudag og þriðjudag
mjög nice ,var að vinna alla helgina ,helt reyndar að eg yrði
geggjuð á sunnudeginum í vinnunni þar sem að allt gekk á
afturfótunum en svona er þetta ,það koma góðir og slæmir dagar
 eg fór í skoðun í gær og er komin rúmar 25 vikur ,þetta
styttist allt saman .eg finn fyrir endalausum hreyfingum hjá litla
kútnum mínum ,hlakka bara til að fá hann til mín .ja við ætlum að
flytja norður um páskahelgina þannig að það eru ekki 3 mánuðir í
það  ,maður þarf að fara pakka niður svo þetta bitni ekki allt á
honum kalla mínum  svo eftir 2 vikur í dag kemur gústa og co vá
hlakkka geggjað mikið til að fá þau,þau koma reyndar bara ef það
verður fært ,eg er orðin hundleið á öllum þessum endalausa snjó
dísus ,sem betur fer er maður komin á jeppa  en já annars er allt
það besta að frétta heðan eg er reyndar heima í dag með hana
svanhildi mína hún er veik svo er brynjar búin að vera með í
eyrunun ,en eg fer að vinna á eftir klukkan 5 ,hlakka til að hitta
hana eyju mína.jamm kossar og knús til ykkar
kv magga
»
07.01.2007 10:56:37 / magguz
gleðilegt nýtt ár
jæja þa eru jólin og allt saman búið og er maður búin að hafa það
mjög gott ,kanski bara alltof gott  við vorum fyrir norðan um
áramótin og var það rosalega gaman,við ágústa fórum í heimsókn til
lilju svo fórum við á rúntinn með henni tótu svo ætluðum við að
hitta hana sunnu en hún var bara stödd á blöndósi ,svo erum við
búin að spila endalaust mikið og gera fullt saman.við komum heim á
nýársdag hef'i sko alveg viljað vera lengur en vinnan kallar  í
gær skruppum við norður á fjarðarhorn í fjölskylduboð hjá
fjölskyldunni hans kalla ,alltaf gaman að kíkja þangað ,við vorum
reyndar komin heim klukkan 2 í nótt.svo í dag erum við að fara í
kaffiboð til frænku minnar.er ekki hissa að maður mundi springa
eftir allt þetta át hehe.eg er komin 24 vikur á leið þetta styttist
allt saman er samt orðin svolitið þreytt á daginn og kvöldin ,er
enn að vinna fulla vinnu á nings og stefni á að vinna sem lengst
þar,þó að eg se nú ekki alveg að nenna því  .maður er orðin
svolitið þreyttur á þessari vinnu þar sem að það er alltaf eitthvað
að ,en jæja ætla nú að segja þetta gott í bili ,skrifa aftur
fljótlega.
kv magga
»
29.12.2006 04:16:36 / magguz
hæhæ allir og gleðileg jól
við fjölskyldan erum búin að hafa að mjög finnt um jólin ,við vorum
bara ein svo komu mamma og pabbi til okkar um kvöldið í heimsókn
.við fengum fullt af flottum gjöfum,þar á meðal 2
ryksugur,matarstell,skálar,tösku,ilmvatn og fullt af flottum gjöfum
...takk æðislega fyrir okkur  svo auðvitað fengum við að opna
umslagið okkar til að vita hvort að eg væri með stelpu eða strák og
ju eg er að fara koma með annan strák   og er auðvitað bara
mest ánægð með það.svo á annan í jólum fórum við norður til ágústu
og erum þar núna og er það nú bara meira en yndislegt að vera komin
þangað .við ætlum ekki að koma í bæinn fyrr en á nýársdag.því kalli
fer að vinna 2 jan.eg er sko búin að vera í fínu fríi úr vinnunni
og það er alveg ágætt þó að maður sakni nú samt sumra þar hehe.en
jæja ætla að segja þetta gott í bili og við heyrumst fljótt
aftur
kv magga
»
23.12.2006 17:29:08 / magguz
vá er ekki alveg að trúa því að það seu jól á morgun en eg er búin
að öllu ,búin að kaupa allar jólagjafirnar og koma þeim frá mer er
búin að taka til og baka smá .við fjölskyldan ætlum að vera ein á
jólunum í fyrsta skiptið .við höfum alltaf verið hjá
múttu  þannig að þetta verður hálf skrítið allt saman svo
er mín yndislega systir á norðurpólnum  en við erum að pæla
í því að fara norður á miðvikudeginum og eyða áramótunum þar
,verður maður ekki að venjast þessu fyrir norðan líka hehe það eru
aðeins 4 og hálfur manuðir þanga til að við flytjum eg á nú samt
eftir að sakna margra her  já svo á morgun fæ eg að opna umslag
sem segir mer hvort kynið eg er með ,á eg get varla beðið .við
kalli fórum í sónarinn fyri 5 dögum siðan og gekk það allt saman
vel ,hún sá kynið strax þannig að eg er svo pottþett á því að eg
fái annan strák hehe en það kemur allt saman í ljós á morgun .jæja
elskurnar mínar eg ætla að fara að vinna eg er að taka aukavakt í
kvöld ,svo er maður komin í langt jólafrí.eg vil óska öllum
gleðilegra jóla og hafið það sem allra best krúttin mín .eg skrifa
nú kanski færslu inn á morgun hehe stóru frettirnar .
kv magga
»
13.12.2006 18:25:55 / magguz
jæja er nú búin að vera frekar pirruð síðustu daga  er búin að
detta 2 í helvítans hálkunni her fyrir utan hjá mer er að verða
brjáluð ,bað kalla um að vinsamlegast koma með salt heim aður en
hann kæmi heim úr vinnunni.ja svo er eg búin að vera vinna og
alltaf sömu vandamálin þar ,undirmannaðar eins og alltaf ,var að
vinna í gær og eg helt að eg mundi bilast .af hverju fara allir á
nings að borða    en við redduðum þessu eins og alltaf .svo
styttist í jólin og er eg búin að kaupa helminginn af gjöfunum og
þarf að fara senda út á land ,þar sem að flest allar gjafirnar fara
þangað  kalli suðar og suðar í mer að vera fyrir norðan um
jólin veit nú ekki alveg hvort að það verði eitthvað úr því en
allavega um áramótin  ekki það eg mundi nú alveg vilja vera
hjá systu minni um jólin en nenni ekki að burðast með alla pakkana
svona langt ,bara til að opna þa og koma svo með þa suður aftur.eg
er að fara í sónar næsta mánudag og hlakka mikið til ,við ætlum að
fá að vita kynið en við ætlum reyndar ekki að opna það fyrr en á
aðfangadag  ohhh hlakka svo til ,trúi varla að eg se komin svona
langt á leið eg verð komin með litla krílið mitt í hendurnar áður
en eg veit af.mamma og pabbi fóru norður á manudaginn og er það
alveg hræðilegt þar sem að mamma passar alltaf fyrir mig veit ekki
alveg hvernig eg færi að án hennar .það er gott að eiga góða
að  get ekki beðið eftir að þau koma aftur á föstudaginn.svo eru
allir her lausir við ælupestina og niðurganginn sem gekk her á í
siðustu viku  ,en já annars er allt hið besta að fretta heðan
,er bara ánægð með að vera í fríi og ætla að njóta þess mikið hehe
fer svo að vinna um helgina  takk fyrir gærdaginn tóta mín
hehe þú veist hvað eg meina .ömurlegur dagur ,en auðvitað reddum
við öllu saman.bið að heilsa .kv magga
»
05.12.2006 09:44:31 / magguz
jæja þa er ælupestin komin á þennan bæ  ekki skemmtilegt
.Brynjar minn er búin að vera veikur síðan á laugardagskvöldið hann
er með ælupestina ,svo maður svaf nú lítið á laugardagsnóttina,eg
mætti ósofin í vinnuna og ætlaði að fa að fara fyrr heim en þa
mætti ekki stelpan sem átti að vinna með mer og djöfull var eg
pirruð allan daginn endaði með að fá að fara heim korter yfir 8
alveg 2 tímum fyrir vaktina ...óþolandi svona fólk sem getur ekki
stundað sína vinnu  þannig að gærdagurinn fór mest allur í
svefn fyrir hádegi svo að snúast eftir hádegi svo í nótt vaknaði
kalli minn og ældi endalaust þannig að ætli við svanhildur seum
ekki eftir .ætli maður eyði ekki frí helginni sinni í veikindi
típist
en já það styttist í jólin og eg er ekki byrjuð á miklu eg ætla nú
samt ekki að stressa mig mikið yfir einhverjum hreingerningum ,við
verðum sennilega bara ein á jólunum í fyrsta skiptið og ætlum svo
norður á áramótunum vívívíví hlakka endalaust til þess ,það er svo
margt að vefjast í hausnum á manni þessa dagana hvort að maður eigi
að eiga á akureyri eða her í bænum hvort að maður eigi að flytja
norður fyrr og svona ,eg verð nú að viðurkenna að þótt að mig
hlakki til að flytja í mína íbuð fyrir norðan og stærri þa kvíður
mer smá fyrir ,veit ekki á eftir að sakna svo margra her en það
hlítur að reddast og venjast .jæja ætla að fara kúra hjá honum
kalla mínum  heyrumst .kv magga
»
Síður: 1 2
|
|