vá er ekki alveg að trúa því að það seu jól á morgun en eg er búin
að öllu ,búin að kaupa allar jólagjafirnar og koma þeim frá mer er
búin að taka til og baka smá .við fjölskyldan ætlum að vera ein á
jólunum í fyrsta skiptið .við höfum alltaf verið hjá
múttu

þannig að þetta verður hálf skrítið allt saman svo
er mín yndislega systir á norðurpólnum

en við erum að pæla
í því að fara norður á miðvikudeginum og eyða áramótunum þar
,verður maður ekki að venjast þessu fyrir norðan líka hehe það eru
aðeins 4 og hálfur manuðir þanga til að við flytjum eg á nú samt
eftir að sakna margra her

já svo á morgun fæ eg að opna umslag
sem segir mer hvort kynið eg er með ,á eg get varla beðið .við
kalli fórum í sónarinn fyri 5 dögum siðan og gekk það allt saman
vel ,hún sá kynið strax þannig að eg er svo pottþett á því að eg
fái annan strák hehe en það kemur allt saman í ljós á morgun .jæja
elskurnar mínar eg ætla að fara að vinna eg er að taka aukavakt í
kvöld ,svo er maður komin í langt jólafrí.eg vil óska öllum
gleðilegra jóla og hafið það sem allra best krúttin mín .eg skrifa
nú kanski færslu inn á morgun hehe stóru frettirnar .
kv magga